Auglýsing

Ýmislegt

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

!

27. apríl 2007 klukkan 18:45
Heyrðu við ætlum að taka okkur smá pásu á þessari síðu, en ætlum að byrja nýja síðu með stelpunum;) www.blog.central.is/denim endilega kíkja!



kv ólína&laufey

Nýtt

16. apríl 2007 klukkan 17:00

Nýjar myndir frá því að ég var á Sauðárkróki, það var ýkt gaman, geggjað að hitta ykkur öll, þarf að koma oftar;) 

en já síðan kemur örugglega blogg frá laufey minni;) er þaki?:P
hehe


kv ólína

13. apríl 2007 klukkan 00:48

Vá hvað ég er bara búin að vera að læra og læra og læra!
það eru bara eikkerjar 3 vikur i samræmdu prófin sem er bara MJÖG stuttur tími finnst mér,
og ég er að deyja.
Æi samt alltaf gott síðan að vera bara búin í prófunum og þá er FRÍ!
Þá er mín sko að fara til Lanzarote 8 júlí Glottandi get ekki beðið.
Hlakka til að geta bara legið á ströndinni og baðað mig í sólinni mmmm best!
með kannski eikkern ískaldann drykk, vá æði,æði.

En já annars þá er ég að fara á aðra leiklistaræfingu á morgun,
því að við eigum örugglega að sýna árshátíðaratriðið okkar (Keflavík í poppskurn) í næstu viku, og það verður örugglega í leikhúsinu;D
Vona bara að röddin mín verður komin í lag þá:D því að ég er eiginlega búin að vera veik alla páskana:/ en er öll að koma til(Y).

Síðan á morgun er ég að fara norður í land, á Sauðárkrók. Er að fara í fermingarveislu til frænku minnar, sem verður örugglega bara mjög fínt því að ég er ekki búin að hitta allt þetta náskylda fólk lengi! og síðan ætla ég líka að hitta alla vinina og sonna:D  Síðan kem ég bara aftur heim á sunnudaginn.

Svo er bara SUMARDAGURINN FYRSTI á fimmtudaginn í næstu viku...Hlæjandi váá ohh hvað ég vona að þetta verði ýkt gott sumar, alltaf ýkt mikil sól og eikka. Sem að verður örugglega ekki , en maður má vera smá bjartsýnn á þetta ;) það þýðir ekkert annað! hehe.

En já ég ætlaði bara að skella á einu bloggi hérna, ekkert spes blogg neitt en lífgar þó aðeins uppá síðuna ;D


kv olina






Pirringur.

28. mars 2007 klukkan 00:04




Nýjar myndir, (þegar að ég og laufey kíktum í bæinn)!



Hæhæ :)

Ólína bað mig um að gera skemmtilegt blogg, ég veit ekki alveg hvort það takist útaf ég er ekki alveg í þannig skapi en ég reyni :) Þetta verður ekki langt blogg því ég nenni hreinlega ekki að blogga.

Vitið hvað ? ég blogga bara um hvað fer í taugarnar á mér.

Vera veik/ur. Það er ekkert leiðinlegra en að vera veikur. Maður má ekkert fara út, hittir ekki neinn, líður illa og bara allt við það að vera veikur er leiðinlegt.

Þegar fólk segir hæ á msn og ekkert meira. Það er fátt meira pirrandi en að vera á msn og síðan segir eitthver hæ og bara ekkert meira, ég meina tilhvers þá að segja hæ? og líka þegar fólk talar við mann og gerir ekki broskalla eða gefur ekkert í skyn að hann/hún nenni að tala við mann.

Smjatt. Hver er ekki sammála mér í þessu ? Það fer ýkt í mig þegar fólk er með tyggjó og smjattar eins og ég veit ekki hvað. Líka þegar maður er að borða, það liggur við að ég missi matarlystina þegar fólk smjattar.

Fólk sem tjáir tilfinningar sýnar á msn. Mér finnst að þegar fólk heitir á msn eitthvað í þessa áttina " viltu ekki bara drepa mig líka? " og eitthvað svona og fl þá finnst mér fólk nú bara vera að kalla á athygli. Og líka það þegar þau heita " ég er meira en hálfnuð með ritgerðina" og svona, hverjum er ekki nákvæmlega sama? Mér er allavegana sama.

Þegar blogg eyðist. Þegar maður er búinn að blogga geðveikislega langt blogg og síðan eyðist það. Það er eitt af því sem er mest pirrandi.

Þá er þetta komið held ég bara. Ég nenni ekki að blogga meira. Blogga bara meira seinna.

Enn er hætt.

Laufey(:





jćja

21. mars 2007 klukkan 19:36
þá er árshátíðin búin og það var geggjað gaman,! maturinn og það allt var ýkt gott, fengum fyrst svona fordrykk og jarðaber með súkkulaði mmm , síðan í aðalrétt var kjúklingabrina í karamellusósu síðan var ís í eftirrétt, þetta var allt ýkt gott! takk fyrir mig ;D




Vá hvað ballið var geðveikt! love guru var að spila,
og við stelpurnar bara trylltumst og dönsuðum á fullu !
 


síðan þegar að ballið var buið var farið í limmó ;D tekið smá rúnt ;* sem var bara fínt, en já það eru komnar myndir af árshátíðinni , siðan getiði líka farið á www.heidarskoli.is og skoðað myndir:D en já bara enn og aftur takk fyrir mig.:D



skvisur;)

kv ólína



Sweet Sixteen:P

19. mars 2007 klukkan 15:03
Hún Laufey Ósk Andrésdóttir á afmæli í dag;* til hamingju litla rassgat:D hvernig er svo að vera sextán? haha :D

Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún laufey
hún á afmæli í dag

Hún er sextán ára í dag
hún er sextán ára í dag
hún er sextán ára hún laufey
hún er sextán ára í dag !!!!

hún verður gömul og grá og allt það haha;D

en já ætlaði bara að koma þessu til skila :D DÝRKA ÞIG ELSKAN MÍN;)

  

kv ólína:D

=P

17. mars 2007 klukkan 13:08

Vá hvað þessi síða er dauð! vorum að reyna að gera eikka á henni en
eins og þið sjáið þá var það ekki mikið haha:$ laufey setti bara nokkrar
myndir;) og við bjuggum til nýjan dálk en það er bara ekkert komið í
hann ennþá ! við reynum að finna eikka sniðugt, kannski maður gerir
bara slúður eftir allt saman, aldrei að vita.
                                                                          
     
    


En laufey mín á afmæli á mánudaginn í næstu viku..:) TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ LITLA RASSGAT;* laufey var ekki flott kortið sem að ég gaf þér ? ;) haha já við vorum smekklegar á okkar yngri árum,:P
Man alltaf laufey þegar að við vorum á Akureyri saman og vorum úti í snjónum (Mjög langt síðan) og síðan var eikker gömul kona að labba framhjá og síðan sagði hún, Nei ! eru strákarnir að leika sér útí snjónum! við vorum bara :O hahaha útaf því að við klæddum okkur alltaf eins og strákar hahaha, vá hvað ég man mikið eftir þessu BEST!! vorum ýkt fúlar ,,:'D


hahahaha flottar(Y) laufey, ég, kristín ósk, Sunna og ásta erla ;D

En allavega það er OFUR mikið stutt í samræmdu prófin djisus ! og mér finnst eins og við séum ekkert búin að vera að læra undir þau :| er sko með bara þvílíkan hnút í maganum,

en já okei ég ætla að hætta að tala um samræmdu því að þá verð ég ennþá kvíðnari.

Síðan er árshátíðin á þriðjudaginn, vá hvað mig hlakkar til. Verður örugglega geggjað, eða ég vona það:D siðan er auðvitað ballið eftir matinn í skólanum, svo erum við stelpurnar búnar að panta limmó ;) það verður geggjað ! eftir ballið þá verðum við bara á rúntinum á limmó! crasy,
nenni voða lítið að segja eikka meira þannig að..... þetta er mjög tilgangslaust blogg en skárra en ekkert og váa laufey reynum að lífga þessa síðu aðeins við.



kv ólína-

Hey!

03. mars 2007 klukkan 01:35
Það eru komnar nýjar myndir, endilega tékka;), tek það samt fram að
ég og laufey vorum í þvílíku stuði og vorum ýkt mikið að flippa með
myndavélina.. haha!

við höfðum það bara rosa kósý og leigðum okkur mynd ( john tucker must die ) , meðan að aðrir voru á Samfés ballinu og skemmtu sér örugglega konunglega! við náðum ekki að fá miða Fýldur allt uppselt,: en laufey þetta kvöld var æði sko! haha ! mér er eiginlega alveg sama núna þótt að við fórum ekki á þetta samfés ball, þótt að það hefði kannski verið skemmtilegt en þetta kvöld váá haha við getum skemmt okkur sssvvvooo vel! dýrka þig sæta mínHlæjandi 

en ég nenni eiginlega ekkert að hafa þetta lengra sko:/ ég kem með ýkt skemmtilegra blogg næst, þegar að ég nenni almennilega að blogga okei? :D haha! ok





kv ólína

Hópfýla.

28. febrúar 2007 klukkan 15:37
Hæhæ :D

ég ætla ekki að blogga núna um það sem ég gerði í dag og í gær og allt það. Ég ætla frekar að blogga um eitthvað annað hehe ;)

En já, Samfés, mig langar drullu mikið núna á það, en nei miðarnir búnir og ekki hægt að fá miða. Afhverju þurfti ég að vera svo heimsk að vilja ekki að fara á samfés þegar það voru miðar til sölu? Vá heimska ég. En þið sem farið á Samfés verðið bara að skemmta ykkur ýkt vel fyrir mig :D hehe ;D  Mér finnst samt svo asnalegt, mér finnst að það ætti að selja miða í skólunum eins og fyrir öll böll. Er ég kannski ein um það eða? Jæja ekki hægt að röfla meira um þetta, þetta er bara svona ;)

Samræmduprófin, þau eru alveg að skella á og mér finnst eins og við séum ekki búin að æfa okkur neitt í skólanum. Mér finnst ég bara ekki alveg nógu mikið tilbúin til að fara í þau.

Próf. Það eru alltaf próf hjá okkur í skólanum. Við erum kannski nýbúin að fara í próf þá kemur annað próf í sama fagi nokkrum dögum seinna. Í fyrra vorum við alltaf í prófum, 2-3 próf í viku. Sem betur fer er þetta ekki svona núna, en samt það er miklu betra að fara í kaflapróf heldur en að þurfa að taka alla bókina eitthvern tímann í enda annarinnar eða eitthvað þannig, mér finnst það allavegana.

Ég er hætt að röfla, því að það þetta er drulluleiðinlegt blogg. Blogga eitthvað skemmtilegra næst, lofa því samt ekki .  ;)



LaufeyÓsk (:

=D

22. febrúar 2007 klukkan 19:29
halló, það er kominn doldið langt síðan að ég bloggaði seinast, þannig að best að

skella á einu bloggi hér. Þetta verður nú samt ekkert svaka blogg neitt en þó skárra

en ekkert:)


Þessi síða er alveg að deyja sko, laufey við erum alltaf að segja já gerum eikka á þessari síðu, en gerum eiginlega aldrei neitt.. hehe  endilega segja í comment hvað við getum sett á síðuna okkar, við vitum ekkert hvað við getum gert, en það á þá pottþétt eikker eftir að segja slúður, þá ætla ég bara að láta vita strax að ég og laufey erum ekkert rosa klárar neitt í slúðri, !  hehe;) allavega ekki ég ,, gæti vel verið að laufey leyni eikka á sér! 

En já Bolludagurinn var á mánudaginn mmmm geggjað gott, var samt eiginlega búin að fá nóg af bollum á bolludaginn sjálfann því að ég borðaði doldið mikið af þeim á sunnudaginn þegar að mamma var að gera bollurnar :$ en já , síðan kom sprengidagur, það var líka mjög gott en borðaði voða lítið af saltkjöti og baunum, var nefnilega að fara á æfingu strax eftir matinn, þannig að maður gat ekkert verið að sprengja sig neitt hehe, og siðan var Öskudagur í gær, sem var bara fínt! gaman að sjá litlu krakkana í skólanum allir í grímubúningum , =)
Ég mætti í rosa flottum trúðabuxum haha og í náttbuxunum mínum bara innan undir! var í klukkutíma í skólanum fór síðan bara heim :/ voða tilgangslaust að fara í skólann og gera ekki neitt í klukkutíma í staðinn fyrir að geta verið bara heima og sofa !


Þetta var voða spes blogg en ég geri flottara næst, en endilega skrifa í comment

hvað sé hægt að gera inná þessa síðu, erum alveg í vandræðum.

kv ólína